Nýtt tímabundið tækifæri til sölu ökutækja úr landi
Opnast hefur tímabundið tækifæri til og með 31. desember 2009 fyrir eigendur ökutækja til að selja ökutæki sín úr landi og fá endurgreiddan hluta af vörugjöldum og virðisaukaskatti. Þetta mun gera það að verkum að bílar frá Íslandi verði samkeppnishæfur kostur á mörkuðum erlendis meðan gengi Íslensku krónunar er veikt.
Virðisaukaskattur og vörugjöld sem greidd voru af bifreiðum við tollafgreiðslu þeirra mynda endurgreiðslugrunn. Endurgreiðsluhlutfallið lækki með aldri bílsins frá nýskráningardegi. Þannig er gert ráð fyrir að grunnurinn lækki um 2% fyrir hvern byrjaðan mánuð fyrstu 12 mánuðina og um 1,5% á mánuði eftir það, þar til fyrning hefur náðst að fullu. Þó mun samanlögð endurgreiðsla vörugjalds og virðisaukaskatts samkvæmt lögunm ekki vera hærri en 2.000.000 kr. fyrir hvert ökutæki.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts nær ekki til þeirra ökutækja sem hafa notið innskatts (VSK bílar) en í slíkum tilfellum yrðu vörugjöld endurgreidd eftir sömu reglum og að ofan greinir.
Eru öll ökutæki söluhæf erlendis?
Eftirspurn eftir ökutækjum erlendis er ekki óáþekk því sem hér tíðkast. Því er möguleiki á að selja allar "íslenskar" bifreiðar erlendis, þó eru mestar líkur á að selja bifreiðar sem eru yngri en 5 ára.
Hvernig getur bíll.is liðsinnt þér við útflutninginn?
Bíll.is birtist á erlendum leitavélum á ensku sem www.cars4sale.is, bíll.is skráir bílinn, kannar endurgreiðslumöguleika og aðstoðar við samskipti og samninga við lánafyrirtæki og flutningsaðila. Bíll.is útvegar öll gögn sem til þarf og sér um að útbúa útfluttnings tollskýrslu. Bíll.is er ein mest heimsótta heimasíðan með notaða bíla á Íslandi og með því að skrá bílinn á bíll.is eykur þú möguleika á að selja bílinn þinn á Íslandi og erlendis.
Starfsmenn bíll.is hafa þekkingu á öllum þáttum útflutnings bifreiða. Á undanförnum árum hefur bíll.is liðsinnt mörgum viðskiptavinum sínum við innflutning á bifreiðum og mun sú reynsla nýtast vel. Fyrirtækið hefur meðal annars átt farsælt samstarf við marga söluaðila í Evrópu. Nú gefst þeim, sem vilja selja bíla sína úr landi, tækifæri til að njóta þessa trausta samstarfs.
Hvernig getur þú fundið út hvort ökutæki þitt sé vænlegt til útflutnings?
Fyrsta skrefið er að skrá bílinn hjá bíll.is. Það er hægt að gera með því að hringja í síma 577 3777, koma við á bíll.is eða skrá hann á www.bill.is. Starfsmenn bíll.is ljósmynda bílinn og kanna síðan endurgreiðslumöguleikana. Þó af útflutningi verði ekki er bíllinn strax skráður til sölu hjá bíll.is sem er ein af stærstu bílasölum landsins. Vel gæti verið að hægt sé að koma bílnum þínum í verð hér heima.












